F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sævarhöfði – Svartshöfði, Göngustígur, útboð 14939
Verkið felst í að útbúa göngustíg milli Sævarhöfða við Bryggjuhverfi og að Svarthöfða. Einnig skal útbúa tröppustíg á milli stígshluta og gönguþverun yfir frárein frá Gullinbrú móts við Naustabryggju. Gera skal síglýsingu meðfram stíg ásamt fullnaðarfrágang á lagnastæði fyrir háspennulögn meðfram stígstæði.
Helstu magntölur eru:
• Uppgröftur og brottakstur 850 m³
• Losun klappar 50 m3
• Malarfylling 1500 m³
• Malbik, stígar 1050 m²
• Hellur 82 m2
• Forsteypt þrep 2m 63 stk
• Þökulagnir 1600 m²
• Handrið 25 m
• Uppsetning ljósastólpa 16 stk
• Raflagnir. Jarðvinna 110 m3
Lokaskiladagur verksins er 30. október 2020.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 10:00, þriðjudaginn 14. júlí n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:20, þann 28. júlí 2020.