Home Fréttir Í fréttum Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfið á Akureyri

Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfið á Akureyri

125
0
Meðan á framkvæmdum stendur verður fráveituvatni frá Akureyri hleypt út um neyðarkerfi við sunnanverðan Glerárós.

Áætlað er að mánudaginn 6. júlí hefjist vinna við tengingu nýrrar hreinsistöðvar fráveitu við fráveitukerfið á Akureyri.

<>

Stefnt er að því að ljúka verkinu á fjórum til fimm dögum, en einungis er hægt að vinna verkið á fjöru og er um nokkra verkþætti að ræða.

Meðan á vinnunni stendur mun megninu af fráveituvatni frá Akureyri verða hleypt út um neyðarkerfi við sunnanverðan Glerárós.

Einnig verður fráveituvatni hleypt út í voginn sunnan Krossaness.

Að framkvæmdum loknum mun fráveituvatnið fara um nýja útrás við hreinsistöðina sem er tæplega 400 metra löng og nær niður á 40 metra dýpi.

Áætlað er að í sumar verði hreinsistöðin prófuð og síðan tekin endanlega í notkun seinni hluta ágústmánaðar.

Fólk er beðið um að sýna aðgát og stunda ekki sjóböð á viðkomandi svæðum meðan á tengiframkvæmdum stendur.

Heimild: Akureyri.is