Umhverfis- og framkvæmdasvið Hafnarfjarðarbæjar óskar eftir tilboði í verkið: “Suðurbæjarlaug þakviðgerðir“
það er endurnýjun og lagfæringum á þaki Suðurbæjarlaugar Hringbraut 77 Hafnarfirði.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdasviðs Hafnarfjarðabæjar að Norðurhellu 2, 1. hæð frá og með þriðjudeginum 16.06.2020 kl. 10:00.
Tilboðum skal skila á sama stað, eigi síðar en fimmtudaginn 25.06.2020 kl. 11:00.
Tilboð verða opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska fimmtudaginn 25.06.2020 kl. 11:00.
Helstu verkþættir eru:
Rif, viðgerðir og endurgerð á þaki og þakkanti Suðurbæjarlaugar:
Stærð á þaki er 1252 m2
Þakkantur er 143 m
Verkinu skal að fullu lokið 18 september 2020.