Veitur óska tilboða í endurnýjun hitaveitulagna á fjórum stöðum í Borgarnesi.
En Borgarbyggð ætlar að endurnýja gangstéttar á fjórum stöðum í Borgarnesi sumarið 2020.
Áður en yfirborð verður endurnýjað ætla Veitur að endurnýja hitaveitulagnir og RARIK að endurnýja raflagnir.
Kaflarnir sem um ræðir eru:
90m við Skallagrímsgötu 1-7, 115m við Gunnlaugsgötu 2-12, 95m við Þórólfsgötu 17-21, 200m við Borgarbraut 45-55.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem hægt er að nálgast endurgjaldslaust á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.