Home Fréttir Í fréttum 30.06.2020 Landsnet hf. Strengja- og útivistarbrú yfir Glerá

30.06.2020 Landsnet hf. Strengja- og útivistarbrú yfir Glerá

379
0
Séð frá Glerá Mynd: Akureyri.is

Landsnet óskar eftir tilboðum í byggingu strengja- og útivistarbrúar yfir Glerá á Akureyri.

<>

Verkið felur í sér smíði stálbogabrúar sem er í einu 35 m löngu hafi.

Lengd brúar með stöplum er um 45 m. Í brúargólfinu eru ídráttarrör fyrir háspennustrengi RARIK og strengir Landsnets eru í upphengdum ryðfrí stálrörum undir brúarbúargólfi.

Brúin verður einnig nýtt sem göngu-, hjóla og reiðbrú.

Helstu verkþættir eru:

  • Gerð tímaáætlunar, skipurits, lýsingar á verklagi og vinnuaðferðum (Method Statement)
  • Aðstöðusköpun
  • Ídráttarrör 900 m
  • Handrið 140 m
  • Bergskeringar 230 m3
  • Steypumót 200 m2
  • Steypa, staðsteypa 40 m3
  • Forsteyptar einingar í brúargólf 18 stk.
  • Stálvirki 14 tonn
  • Ryðfrí Ø500×3 ryðfrí rör undir brú 4,2 tonn
  • Vinna annað það sem sýnt er á teikningum eða kann að verða krafist á framkvæmdatímanum.
  • Frágangur í verklok í samræmi við fyrirmæli verkgagna og umsjónarmanns verkkaupa.

Nánari lýsingu á verkinu er að finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvef Landsnets