Home Fréttir Í fréttum Flugvöllurinn hörfar fyrir nýju hverfi með gangandi og hjólandi í forgangi

Flugvöllurinn hörfar fyrir nýju hverfi með gangandi og hjólandi í forgangi

174
0
Nýja hverfið rís austan við núverandi byggð í Skerjafirði. Hér má sjá fyrri áfanga en síðari áfangi verður að hluta á uppfyllingu. Mynd/Reykjavíkurborg.

Bílnum verður ýtt til hliðar og gangandi og hjólandi vegfarendur settir forgang í nýju hverfi Reykjavíkur í Skerjafirði. Talsmaður borgarstjórnarmeirihlutans hafnar því að verið sé að brjóta samninga við ríkið í flugvallarmálinu með uppbyggingu svæðisins. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

<>

Gert er ráð fyrir allt að 1.500 íbúðum í nýja hverfinu í tveggja til fimm hæða húsum auk leik- og grunnskóla. Í fyrri áfanga verða allt að 700 íbúðir en síðan er gert ráð fyrir uppfyllingu og strönd sem hluta seinni áfanga en nýtt deiliskipulag fyrir svæðið var kynnt á fundi síðdegis í gær.

„Við erum gríðarlega stolt af þessari uppbyggingu og þá sérstaklega það að þarna er gert ráð fyrir miklum fjölda íbúða fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, og stúdenta,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur .

Athygli vekur að einkabílnum er að mestu vikið til hliðar.
„Þetta hverfi er skipulagt þannig að gangandi og hjólandi eru í algerum forgangi í allri innviðahönnun og bílastæðamál verða í rauninni leyst í einu miðlægu bílastæðahúsi,“ segir Sigurborg en í bílastæðahúsinu verður einnig þjónustukjarni með matvöruverslun.

Bílastæðahúsið verður jafnframt þjónustukjarni með matvöruverslun.
Mynd/Reykjavíkurborg

Hverfið rís á svæði sem núna tilheyrir flugvellinum og gerir borgin ráð fyrir að flugvallargirðingin verði færð í sumar. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, telur að með því að ráðast í framkvæmdir þarna áður en nýtt flugvallarstæði liggur fyrir sé borgin að brjóta gegn samkomulagi við ríkið.

Bílnum verður ýtt til hliðar og gangandi og hjólandi vegfarendur settir forgang í nýju hverfi Reykjavíkur í Skerjafirði. Talsmaður borgarstjórnarmeirihlutans hafnar því að verið sé að brjóta samninga við ríkið í flugvallarmálinu með uppbyggingu svæðisins. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Gert er ráð fyrir allt að 1.500 íbúðum í nýja hverfinu í tveggja til fimm hæða húsum auk leik- og grunnskóla. Í fyrri áfanga verða allt að 700 íbúðir en síðan er gert ráð fyrir uppfyllingu og strönd sem hluta seinni áfanga en nýtt deiliskipulag fyrir svæðið var kynnt á fundi síðdegis.

„Við erum gríðarlega stolt af þessari uppbyggingu og þá sérstaklega það að þarna er gert ráð fyrir miklum fjölda íbúða fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, og stúdenta,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur .

Athygli vekur að einkabílnum er að mestu vikið til hliðar.

„Þetta hverfi er skipulagt þannig að gangandi og hjólandi eru í algerum forgangi í allri innviðahönnun og bílastæðamál verða í rauninni leyst í einu miðlægu bílastæðahúsi,“ segir Sigurborg en í bílastæðahúsinu verður einnig þjónustukjarni með matvöruverslun.

Bílastæðahúsið verður jafnframt þjónustukjarni með matvöruverslun.
Mynd/Reykjavíkurborg
Hverfið rís á svæði sem núna tilheyrir flugvellinum og gerir borgin ráð fyrir að flugvallargirðingin verði færð í sumar. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, telur að með því að ráðast í framkvæmdir þarna áður en nýtt flugvallarstæði liggur fyrir sé borgin að brjóta gegn samkomulagi við ríkið.

Þessu hafnar Sigurborg.
„Það er ekki verið að brjóta neina samninga. Það er verið að uppfylla þá samninga sem hafa verið gerðir milli ríkis og borgar.“

Hún segir hverfið ekki hafa bein áhrif á rekstur flugvallarins. Nothæfisstuðull hans haldist óbreyttur, ekki sé verið að byggja upp fyrir hindranafleti og öll uppbyggingin eigi sér stað fyrir utan öryggissvæði vallarins. Markmiðið sé þó að flugvöllurinn fari.

„Íbúar hafa kosið flugvöllinn burt. Aðalskipulagið segir að flugvöllurinn skuli fara. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að flytja flugvöllinn.

Nú stöndum við frammi fyrir loftlagsbreytingum og þá er eitt stærsta skref sem við getum gert er að þétta byggðina og byggja íbúðabyggð þar sem flugvöllurinn er,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir.

Heimild: Visir.is