Home Fréttir Í fréttum 25.06.2020 Varmárskóli Mosfellsbæ, endurbætur ytra byrðis 2-3.áfangi

25.06.2020 Varmárskóli Mosfellsbæ, endurbætur ytra byrðis 2-3.áfangi

612
0
Mynd: mosfellingur.is

Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: „Varmárskóli Mosfellsbæ, endurbætur ytra byrðis 2-3.áfangi“

<>

Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna viðhaldsframkvæmda við Varmárskóla, yngri deild, Skólabraut 6 í Mosfellsbæ.

Framkvæmdir fara fram á árinnu 2020 og 2021.Verkefni þetta felur í sér endurnýjun á hluta þakefna, glugga ásamt múrviðgerðum og málun. Sérstaklega mikilvægt er að verktaki taki tilliti til og lágmarki rask skólahalds.

Helstu verkþættir eru:

Endurnýjun bárujárns á austurálmu og tengibygginu milli álma skólans, ásamt múrviðgerðum og málun veggja á austurálmu. Í vesturhluta skólans verður skipt um glugga á suður og norðurhlið ásamt veggklæðningu.

Verkinu verður skipt niður á tvö ár 2020 og 2021. Byrjað verður á endurnýjun á bárujárni ásamt múrviðgerðum og málun á austurálmu á seinna ári verður farið vesturálmu þar sem skiptverður um glugga og veggjaklæðning endurnýjuð á suðurhlið.

Helstu magntölur eru:

Endurnýjun glugga 29 stk
Endurmálun veggja/lofta 910 m²
Endurnýjun þakjárns 839 m2.
Endurnýjun þakrenna 160.mtr.
Endurnýjun þakkants 190.mtr.
Endurnýjun veggja klæðningar 250. m²
Endurmálun glugga 1200 lm
Pallar og aðstaða Heild

Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2021

Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 13:00 á fimmtudeginum 4. júní 2020.

Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en fimmtudaginn 25. júní 2020 kl.13:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.