Home Fréttir Í fréttum Nesnúpur með lægsta tilboð í viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra

Nesnúpur með lægsta tilboð í viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra

270
0
Fyrirhuguð viðbygging Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd af hunathing.is.

Nesnúpur ehf. var með lægsta tilboð í uppsteypu viðbyggingar Grunnskóla Húnaþings vestra en opnun tilboða fór fram föstudaginn 24. apríl sl. í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

<>

Að sögn Björns Bjarnason, rekstrarstjóra umhverfissviðs sveitarfélagsins,standa viðræður við lægstbjóðanda yfir og verið að útvega frekari gögn.

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 170.638.000 kr. og bárust eftirfarandi tilboð í verkið:

Aðalból byggingafélag ehf.              197.550.179          115,8%
Alefli ehf.                                     177.804.804           104,2%
Raflína ehf og Reynd að smíða ehf. 220.949.260          129,5%
Nesnúpur ehf .                             148.843.264            87,2%

Útboð fyrir raflagnir og pípulagnir verður lokað en eftirtöldum aðilum var gefinn kostur á að bjóða í verkin:
Pípulagnir: Stefánsson ehf. og N1 pípari ehf.
Raflagnir: Tengill ehf., Átak rafmagnsverkstæði ehf., Ingimar Sigurðsson og Raflína ehf.

Heimild: Feykir.is