Home Fréttir Í fréttum Nú standa yfir um­fangs­mikl­ar stækk­un­ar­fram­kvæmd­ir í flug­stöðinni

Nú standa yfir um­fangs­mikl­ar stækk­un­ar­fram­kvæmd­ir í flug­stöðinni

92
0
Mynd: Isavia, Keflavíkurflugvöllur

Teikn­ing af 5.000 fer­metra viðbygg­ingu til suðurs. Hún mun hýsa farþega til og frá landa utan Schengen.

<>

Nú standa yfir um­fangs­mikl­ar stækk­un­ar­fram­kvæmd­ir í flug­stöðinni. Til stend­ur að stækka flug­stöðina um 5.000 fer­metra til suðurs og 3.000 fer­metra til vest­urs. Þar að auki er verið að stækka komu­sal til aust­urs um 700 fer­metra.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá  upp­lýs­inga­full­trúa Isa­via er gert er ráð fyr­ir því að 5.000 fer­metra bygg­ing til suðurs verði til­bú­in í mars. Hún mun hýsa farþega á leið til og frá lönd­um fyr­ir utan Schengen-svæðið. Bætt verður við sex farþega­hliðum, nýrri ör­ygg­is­leit og rými fyr­ir gesti flug­stöðvar­inn­ar verður stækkað.

Viðbygg­ing­in sem er 3.000 fer­metr­ar stend­ur, eins og áður hef­ur komið fram við vest­urs, beint út frá flug­stöðinni þar sem í dag standa bíla­stæði fyr­ir þá á leið úr landi. Að sögn Guðna er ekki kom­in ná­kvæm dag­setn­ing á hvenær fram­kvæmd­ir þar hefjast en gert er ráð fyr­ir að það verði á næstu vik­um.