Home Fréttir Í fréttum Smíði nýs salernishúss við Dettifoss hafin

Smíði nýs salernishúss við Dettifoss hafin

133
0

Í síðasta mánuði var undirritaður þríhliða samningur milli Vatnajökulsþjóðgarðs, Framkvæmdasýslu ríkisins og Byggingarfélagsins Stafnsins um nýtt salernishús við Dettifoss.

<>

Samningurinn er gerður á grunni eldri samnings og útboðs, en er aðlagaður að breyttum forsendum í uppbyggingu hússins.

Sú breyting felst aðallega í því að um þurrsalernislausn verður að ræða, samskonar og var reist í Vikraborgum við Öskju sumarið 2018. Þó er um mun stærri útgáfu að ræða við Dettifoss.

Þurrsalernislausnin er samkvæmt finnskri hönnun og hefur reynst mjög vel í Vikraborgum. Ekkert vatn verður á salernunum heldur safnast úrgangur í þar til gerðar tunnur og þvag fer áfram í sérstakan safntank.

Stefnt er að því að efnið verði síðan nýtt til uppgræðslu á Ássandi í samstarfi við Landgræðsluna. Því má segja að jákvæð umhverfisáhrif verði af þessum nýjum salernum, en stærsti kosturinn er þó rekstraröryggið sem felst í því að hvorki stíflast né frýs í lögnum í óupphituðum húsum fjarri mannabyggðum, tæpa 350 metra yfir sjávarmáli. Aðstæður við Dettifoss eru nefnilega þannig að ekkert veiturafmagn er á staðnum og vart réttlætanlegt að keyra dísilrafstöð dag og nótt til að kynda salerni.

Í nýja húsinu verða 14 salerni auk lageraðstöðu og aðstöðu fyrir landverði. Víst má telja að húsið verði bylting fyrir gesti þjóðgarðsins sem og starfsmenn hans. Stefnt er á að húsið verði tilbúið næsta haust, en bygging þess er þegar hafin á Akureyri.

Jarðvinna hefst á staðnum í vor og húsið flutt upp eftir í sumar. Stefnt er á frágang innanhúss og umhverfis húsið seinni part sumars og mögulega stendur sú vinna fram á haust.

Hönnun hússins og umhverfis þess var í höndum ARGOS, Eflu og Landmótunar auk þess sem reynsluboltar úr hópi landvarða Vatnajökulsþjóðgarðs lögðu sín lóð á vogarskálarnar við útfærslu hússins. Verkið er fjármagnað af landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Heimild: Vatnajökulsþjóðgarður