Home Fréttir Í fréttum 29.04.2020 Ártúnsskóli, endurgerð lóðar 2020 – 2. áfangi. Jarðvinna

29.04.2020 Ártúnsskóli, endurgerð lóðar 2020 – 2. áfangi. Jarðvinna

163
0
Ártúnsskóli Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Ártúnsskóli, endurgerð lóðar 2020 – 2. áfangi. Jarðvinna, útboð nr. 14804

Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar Ártúnsskóla við Árkvörn 6, 110 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er sunnan og austan til á lóðinni um það bil 1.400 m². Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.

Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðsmálningu á malbik / hellur og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. júlí 2020 vegna vinnu við leiktæki, fallvarnarefni og gervigrasi. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 15. júlí til 10. ágúst 2020.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 7. apríl 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 29. apríl 2020.