Home Fréttir Í fréttum Hagkvæmast að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut

Hagkvæmast að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut

84
0

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, bendir á að breytingar hafi verið gerðar á Landspítalaverkefninu í róttækri endurnýjun þess. Ekki sé lengur gert ráð fyrir að rífa allt og byggja upp frá grunni heldur sé núna gert ráð fyrir að nýta hluta af núverandi byggingum áfram. Þetta geri staðsetningu nýs spítala við Hringbraut að mun hagstæðari kosti en aðrar staðsetningar.

<>

Dagur tjáir sig um þetta á Facebook-síðu sinni, þar segir orðrétt:

það er fagnaðarefni að málefni Landspítalans séu komin aftur í brennipunkt. Það er fátt mikilvægara en að endurnýja húsakost spítalans og allir þeir sem vilja búa í samkeppnishæfu velferðarsamfélagi ættu að berjast fyrir því.

En ég tek eftir því að ein meginstaðreynd sem gerir Hringbrautar-staðsetninguna að þeirri hagkvæmustu sem við eigum kost á hefur gleymst eða ekki farið hátt. Það eru breytingarnar sem gerðar voru á Landspítalaverkefninu í róttækri endurskoðun þess. Fyrir hrun var gert ráð fyrir að rífa allt og byggja nýtt frá grunni. Þessi áform voru tekin til róttækrar endurskoðunar eftir hrun og í núverandi áformum sem eru mun hófstilltari og raunhæfari er gert ráð fyrir að nýta um 56.000 fermetra í núverandi byggingum áfram.

Það er ca ein eða ein og hálf Smáralind eða hvað? Til að fylgja eftir hugmyndum um að byggja algjörlega nýjan spítala á nýjum stað þurfa því að fylgja tugmilljarða viðbótarframlög til að byggja þessa 56.000 fermetra, auk þess viðbótarhúsnæðis sem nú á að rísa. Meðal annars vegna þessa er hagkvæmni þess að sameina spítalastarfsemina á Hringbraut mest.

Ég efast um að stemmning sé fyrir því að bæta þessum viðbótar-milljarðatugum við verkefnið, nógu erfiðlega hefur gengið að afla þeirra sem þarf til að koma verkefninu af stað. Stöndum saman um að endurnýjun á húsakosti Landspítalans við Hringbraut! Og það strax!

Hugmyndir hafa verið uppi, meðal annars hjá forsætisráðherra, um að velja nýjum Landspítala nýjan stað, til dæmis rétt hjá Borgarspítalanum.

Heimild: