Home Fréttir Í fréttum 03.04.2020 Mosfellsbær. Helgadalsvegur í Mosfellsdal, jarðvinna og veitur

03.04.2020 Mosfellsbær. Helgadalsvegur í Mosfellsdal, jarðvinna og veitur

443
0
Mosfellsbær

Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: „Helgadalsvegur í Mosfellsdal, Jarðvinna og veitur“

<>

Verkefnið felur í sér að grafa skurði fyrir vatnsveitulagnir, hitaveitulagnir, raflagnir og fjölpípurör eins og teikningar sýna.

Í skurðina skal verktaki sanda undir og yfir rör, leggja lagnir, fylla yfir og ganga frá. Innifalið í verkinu er öll lagning veitna og jarðvinna við fyrirhugaða lagningu veitna.

Mosfellsbær, hér eftir nefndur verkkaupi, óskar eftir tilboðum lögaðila í jarðvinnu- og veituverkefni við lóðir við Helgadalsveg.

Verkefnið felur í sér að grafa skurði fyrir vatnsveitulagnir, hitaveitulagnir, raflagnir og fjölpípurör eins og teikningar sýna.

Í skurðina skal verktaki sanda undir og yfir rör, leggja lagnir, fylla yfir og ganga frá. Innifalið í verkinu er öll lagning veitna og jarðvinna við fyrirhugaða lagningu veitna.

Helstu magntölur eru:
Gröftur fyrir veitulögnum um 1345m³
Fyllingar um 1340m³
Kaldavatnslagnir um 550m
Hitaveitulagnir um 850m
Raflagnir um 990m
Fjarskiptalagnir um 350m

Verkinu skal að fullu lokið 1.september 2020
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 10:00 á þriðjudeginum 10.mars 2020.

Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en föstudaginn 3. apríl 2020 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.