
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu kom saman til fundar í gær og undirritaði verksamning við Ingólf Rögnvaldsson frá Trésmiðju Ingólfs ehf. um 2. áfanga við byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Hellu.
Fyrirtæki Ingólfs átti lægsta tilboð í verkið samtals tæpar 32,6 milljónir króna en kostnaðaráætlun verksins hljóðaði uppá rúmar 38,3 milljónir.
Umsjón og eftirlit með verkinu af hálfu verkkaupa verður í höndum Ólafs Rúnarssonar, aðstoðarmanns byggingarfulltrúa Rangárþings eystra og eldvarnaeftirlitsmanns Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Um er að ræða fullnaðarfrágang við framtíðar slökkvistöð Brunavarna Rangárvallasýslu á Hellu. Á neðri hæð hússins verður tækjasalur auk snyrtiaðstöðu en á þeirri efri verður starfsmannarými auk skrifstofuaðstöðu. Heildarverklok eru 15. maí næstkomandi.
Heimild: Dfs.is