Home Fréttir Í fréttum Stjórn Sorpu fer yfir andmæli framkvæmdastjórans

Stjórn Sorpu fer yfir andmæli framkvæmdastjórans

87
0
Mynd: Kristinn Þeyr Magnússon - RÚV
Stjórn Sorpu bs. fékk á þriðjudag andmæli Björns H. Halldórssonar framkvæmdastjóra við skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar sem gerð var eftir að í ljós kom að 1,4 milljarða króna vantaði inn í áætlanir Sorpu.

Framkvæmdastjórinn er ekki við störf að ósk stjórnarinnar. Stjórnin fór yfir andmæli framkvæmdastjórans á fundi á föstudaginn.

<>

Ákveðið var að skoða þau nánar áður en tekin verður ákvörðun um framhaldið. Það gæti orðið í vikunni, sagði Líf Magneudóttir fulltrúi borgarinnar í stjórn við Fréttastofu í hádeginu.

Heimild: Ruv.is