Home Fréttir Í fréttum Bjóða út leikskólabyggingu í gegnum rammasamning Ríkiskaupa

Bjóða út leikskólabyggingu í gegnum rammasamning Ríkiskaupa

183
0
Mynd: Skessuhorn.is

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum 13. janúar síðastliðinn að láta bjóða út hönnun nýs leikskóla í Skógarhverfi í gegnum rammasamning Ríkiskaupa.

<>

Ráðið samþykkti jafnframt að litið yrði til verðs, reynslu og gæðakerfa hönnuða við mat á tilboðum.

En af hverju var ákveðið að fara þessa leið, í gegnum rammasamning Ríkiskaupa?

Ragnar B. Sæmundsson er formaður skipulags- og umhverfisráðs. „Í gegnum tíðina hafa sveitarfélög oft haldið í lokuð útboð vegna ýmissa verkefna.

En nú hafa viðmiðanir um þau verkefni sem sveitarfélög mega ráðast í án þess að fara í opin útboð lækkað. Að því leyti eru hendur sveitarfélaga bundnari en áður,“ segir Ragnar í samtali við Skessuhorn.

„Jafnframt felur samningurinn í sér að fyrirtæki sem eru aðilar að honum gefa út verð fyrirfram. Opinberir aðilar eiga því að geta séð að vinna við ákveðið verk á til dæmis ekki að kosta meira en þær X krónur á tímann sem fyrirtækin hafa gefið út.

Síðan geta þau gert tilboð,“ bætir hann við. „En það sem er mest um vert er að útboð í gegnum rammasamninginn felur í sér aukið gagnsæi og kemur í veg fyrir að einum sé hyglað á kostnað annars.

Þarna er öllum gefinn kostur á að bjóða í verk, allir sitja við sama borð og leikreglurnar eru skýrar frá upphafi. Það eina sem fyrirtæki þurfa að gera til að taka þátt í útboðunum er að vera aðilar að rammasamningnum,“ segir hann.

En telur Ragnar að útboð í gegnum rammasamning Ríkiskaupa muni koma niður á fyrirtækjum í héraði, þar sem fyrirtæki alls staðar að af landinu geta boðið í verk í gegnum samninginn? „Ég myndi frekar líta svo á að þetta haldi þeim á tánum,“ segir Ragnar.

„Vissulega geta allir gert tilboð, en reynsla okkar er sú að það eru fyrst og fremst fyrirtæki héðan af svæðinu sem hafa verið að bjóða í verk hjá Akraneskaupstað.

Þannig virðist það vera víðast hvar á landinu, flestir virðast hafa haft nóg að gera á sínum svæðum,“ segir hann.

„Ef við lítum á þetta tiltekna útboð, um hönnun leikskóla í Skógahverfi, sjáum við enn fremur að flestar þær stofur sem við höfum á undanförnum árum boðið að taka þátt í lokuðum hönnunarútboðum eru aðilar að rammasamningnum og geta því tekið þátt,“ bætir Ragnar við.

Hann segir að mörgu leyti þægilegt fyrir sveitarfélög að bjóða út í gegnum rammasamninginn. Með honum sé búið að útbúa ákveðið staðlað útboðsferli sem sveitarfélögin geta gengið inn í.

„Sérstaklega ímynda ég mér að þetta komi til með að nýtast minni sveitarfélögum vel, sem hafa ekki mannskap í að stilla upp öllum útboðsgögnum heldur þyrftu að kaupa þá vinnu annars staðar frá,“ segir Ragnar.

Hann kveðst hins vegar ekki vita hvort þessi leið komi til með að lækka mikið endanlegan kostnað sveitarfélaga vegna þeirra verka sem boðin eru út.

„En þetta hefur í för með sér vandaðri vinnubrögð, aukið gagnsæi og er til þess fallið að auka traust og trúverðugleika,“ segir Ragnar B. Sæmundsson og bætir því að fyrir liggi gögn um útboð á hönnun við grunnskólalóðir bæjarins. Þar verði sama leið farin.

Heimild: Skessuhorn.is