Vegagerðin óskar eftir tilboðum í malarvinnslu á Norðursvæði vesturhluti 2020, malarslitlag (0/16).
Helstu magntölur á ári eru:
Efnisvinnsla í 6 námum á Norðvesturlandi: 27.000 m3
Verki skal að fullu lokið 1. október 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 27. janúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.