Home Fréttir Í fréttum 04.03.2020 Akureyrarbær. Leikskóli við Glerárskóla á Akureyri

04.03.2020 Akureyrarbær. Leikskóli við Glerárskóla á Akureyri

364
0
Akureyrarbær

Fyrirhugað er að reisa nýjan leikskóla við grunnskólann Glerárskóla á Akureyri. Húsið verður staðsett á suðvestur hluta lóðarinnar og verður samtengt við núverandi mannvirki á lóðinni með tengigangi.

<>

Leikskólinn verður á tveimur hæðum og er alls um 1450 m². Húsnæðið gerir ráð fyrir 7 deilda leikskóla þar sem 2 deildir eru hugsaðar sem ungbarnaleikskóli. Innangengt verður frá leikskólanum yfir í núverandi íþrótthús, sundlaug og grunnskólann sjálfann.

Helstu verkþættir eru:

• Jarðvinna
• Lóðarvinna
• Uppsteypa og stálburðarvirki
• Frágangur utanhúss
• Frágangur innanhúss og uppsetning á föstum búnaði
• Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna og rafkerfa.

Útboðsgögn verða aðgengileg í gegnum tölvupóstfangið umsarekstur@akureyri.is frá kl.14:00 þann 12. febrúar 2020.

Opnun tilboða fer fram kl. 13:00 þann 4. mars 2020 í fundarherbergi umhverfis- og mannvirkjasviðs á 4. hæð í Ráðhúsi Akureyrar.