Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Arnarnesvegur, Reykjanesbraut-Fífuhvammsvegur, eftirlit

Opnun útboðs: Arnarnesvegur, Reykjanesbraut-Fífuhvammsvegur, eftirlit

175
0

Fyrri opnunarfundur 30. júní 2015. Eftirlit með gerð Arnarnesvegar milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar.

<>

Framkvæmdin felst í gerð Arnarnesvegar frá mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut og austur fyrir Fífuhvammsveg, samtals 1.600 m. Á vegkaflanum skal gera þrenn gatnamót og byggja skal tvenn steypt undirgöng. Einnig skal setja upp veglýsingu, gera stíga, landmótun, hljóðvarnir, færslu og endurlögn háspennulagna og stofnlagnar hitaveitu auk ídráttarröra og strengja.

Framkvæmdin er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Kópavogs, Garðabæjar og veitufyrirtækja.

Bjóðandi
Áætlaður verktakakostnaður
Efla hf., verkfræðistofa, Reykjavík
VSB ehf., verkfræðistofa, Hafnarfirði
Strendingur ehf., Hafnarfirði
Verkís hf., Reykjavík
Mannvit hf., Reykjavík

Síðari opnunarfundur verður  þriðjudaginn 7. júlí 2015 kl. 14:15 þar sem lesin verður upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.