Home Fréttir Í fréttum Dýrafjarðargöng – Framvinda í viku 1 og 2 2020

Dýrafjarðargöng – Framvinda í viku 1 og 2 2020

250
0
Mynd: Baldvin Jónbjarnarson/bb.is

Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í vikum 1 & 2 við vinnu Dýrafjarðarganga.

<>

Sem fyrr var unnið við uppsetningu á einangrunarklæðingu til vatnsvarna í göngunum ásamt því að haldið var áfram að sprautusteypa yfir klæðingarnar.

Uppsteypu á tæknirýmunum í göngunum kláraðist og byrjað var á að steypa í fyrsta neyðarrýminu ásamt því að einn tengibrunnur fyrir 132 kV jarðstreng Landsnets var steyptur.

Nokkuð af efni var keyrt í veginn í göngunum. Haldið var áfram með að grafa skurð fyrir ídráttarrörum sem eru fyrir stýristrengi og lágspennu í hægri vegöxl.

Jarðvinna kláraðist fyrir tvö neyðarrými en í heildina eru neyðarrýmin fimm.

Á meðfylgjandi myndum má sjá uppsteypt tæknirými, steypumót fyrir neyðarrými og uppsetningu á vatnsvörnum.

Mynd: Baldvin Jónbjarnarson/bb.is
Mynd: Baldvin Jónbjarnarson/bb.is

Fyrir hönd framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga
Baldvin Jónbjarnarson

Heimild:BB.is