Home Fréttir Í fréttum Eini tveggja bursta steinbær landsins til sölu á 90 milljónir

Eini tveggja bursta steinbær landsins til sölu á 90 milljónir

257
0
Sérstaklega glæsilegt hús. myndir/fasteignaljosmyndun.is

Stóraseli í Reykjavík er eini tveggja bursta steinbærinn sem eftir er í Reykjavík og er húsið til sölu á almennum markaði. Ásett verð er 89,5 milljónir og sér Eignamiðlun um söluferlið.

<>

Bærinn var byggður í tveimur áföngum árin 1884 og 1893, en áður hafði þar staðið torfbær um margra alda skeið. Bærinn stendur nú í bakgarði húsa við Holtsgötu, Ánanaust, Sólvallagötu og Framnesveg.

Húsið hefur allt verið tekið í gegn en það var orðið ákaflega hrörlegt. Byrjað var að taka innan úr húsinu árið 2015 og stóðu svo yfir fornleifarannsóknir fram til ársins 2016.

Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, sagði í samtali við Vísi á síðasta ári að hann gerði ráð fyrir að tap Minjaverndar vegna verksins yrði um tuttugu milljónir.

Alltaf hafi verið gert ráð fyrir tap á verkinu líkt og oft er þegar Minjavernd hefur við byggingum og hyggur á endurbætur.

Minjavernd er hlutafélag þar sem íslenska ríkið og Reykjavíkurborg eiga bæði um 38 prósenta hlut, og sjálfseignarstofnunin Minjar um 23 prósenta hlut.

Húsið er 150 fermetrar að stærð og eru í því þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Fasteignamat eignarinnar er 84 milljónir.

Húsið var sem næst byggt í upprunalegum stíl. Gólfplata er steypt og er hiti í henni í forstofum, baðherbergi og arinstofu. Allar lagnir eru nýjar. Raflagnir endurnýjaðar.

Heimild: Visir.is