Stór byggingakrani féll á einbýlishús í Urriðaholti í Garðabæ á laugardag. Vinnueftirlitið var kallað á staðinn.
Í frétt mbl.is af atvikinu kemur fram að enginn virðist hafa slasast en þak hússins hafi skemmst.
Appelsínugul viðvörun var í gildi vegna veðurs á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og Miðhálendi.
Á höfuðborgarsvæðinu var gert ráð fyrir á laugardag suðaustan 15 til 23 metrar á sekúndu.
Heimild: Ruv.is