Home Fréttir Í fréttum Kynningarfundur um raunfærnimat

Kynningarfundur um raunfærnimat

142
0
Mynd: IÐAN fræðslusetur

Fimmtudaginn 9. janúar nk. stendur IÐAN fræðslusetur fyrir kynningarfundi um raunfærnimat.

<>

Fundurinn hefst kl. 17.00 og er haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs að Vatnagörðum 20 í Reykjavík.

Allir eru velkomnir.

Raunfærnimat er leið til að meta til náms þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því.

Eftirfarandi greinar eru á dagskrá í raunfærnimati hjá IÐUNNI vorið 2020 ef næg þátttaka fæst:

Bifvélavirkjun, bílamálun og bílasmíði
Húsasmíði, múraraiðn og skrúðgarðyrkja
Matreiðsla
Málmsuða

Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein.

Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi að loknu matinu.

Raunfærnimat er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað.

Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað.

Meira um raunfærnimat

Heimild: IÐAN fræðslusetur