
Efnt hefur verið til samkeppni um hönnun á nýju 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík sem leysa mun af hólmi dvalar- og hjúkrunarheimilið Hvamm.
Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit standa saman að byggingu heimilisins.
Með tilkomu þess fjölgar hjúkrunarrýmum á svæðinu um sex.
Framkvæmdasýsla ríkisins stendur fyrir hönnunarsamkeppninni fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélagsins Norðurþings.
Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 7. janúar næstkomandi en því síðara 7. febrúar. Skilafrestur tillagna er til 21. febrúar 2020.
Upplýsingar um samkeppnina á vef Framkvæmdasýslu ríkisins
Heimild: Kaffid.is