Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Brú yfir Fossvog, hönnunarsamkeppni – forval

Opnun útboðs: Brú yfir Fossvog, hönnunarsamkeppni – forval

350
0
Mynd: Reykjavík.is

Föstudaginn 20. desember 2019 var liðinn umsóknarfrestur um þátttöku í hönnunarsamkeppni um brú á Fossvog.

<>

Ný brú yfir Fossvog mun bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs og er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar vegna Borgarlínu milli Hamraborgar og Hlemms. Gert er ráð fyrir brúnni í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar.

Á brúnni verður gert ráð fyrir hjóla- og göngustíg ásamt akreinum fyrir almenningssamgöngur sem tengjast stíga- og gatnakerfi Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar.

Ekki er gert ráð fyrir almennri umferð ökutækja um brúna að undanskildum tækjum nauðsynlegum vegna viðhalds, snjóhreinsunar og vegna neyðaraksturs.

Allar þátttökuóskir voru rafrænar og voru opnaðar í viðurvist fulltrúa Borgarlínunnar, Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar.

Mjög góð þáttaka var og bárust óskir um þátttöku frá 17 hönnunarteymum. Bæði frá innlendum og erlendum verkfræði- og arkitektastofum.

Í flestum teymum er um að ræða samstarf innlendra og erlendra aðila.

Matsnefnd mun núna fara yfir umsóknirnar og velja 5 teymi til að taka þátt í hönnunarsamkeppninni. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir um miðjan janúar og að hönnunarsamkeppnin hefjist í framhaldinu.

Þau 5 hönnunarteymi sem verða valin munu fá greitt fyrir sitt framlag í samkeppninni. Að lokinni samkeppni er svo gert ráð fyrir að samið verði við sigurvegara samkeppninnar um fullnaðarhönnun nýrrar brúar yfir Fossvog.

Umækjendur um þátttöku eru eftirtaldir:
Arkþing Nordic
Dr. techn. Olav Olsen As
EFLA hf.
Ferill verkfræðistofa
Hamar ehf
Hans Tryggvason
Kanon arkitektar
Krabbenhøft & Ingólfsson Aps
Ney & Partners
Rambøll Danmark A/S
Strendingur ehf.
Teiknistofan Tröð
Úti og Inni sf. arkitektar
Verkís
Wilkinson Eyre Architects
VSB Verkfræðistofa
VSÓ ráðgjöf ehf.