Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda ÍSTAK byggir brýr yfir Steinavötn og Fellsá

ÍSTAK byggir brýr yfir Steinavötn og Fellsá

314
0
Karl Andreassen framkvæmdastjóri ÍSTAK og Óskar Örn Jónsson forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar skrifuðu undir samninginn í húsnæði Vegagerðarinnar í dag, 9. desember 2019. Mynd: Vegagerðin

Skrifað hefur verið undir samning við ÍSTAK hf um smíði nýrra brúa yfir Steinavötn og Fellsá.

<>

Brúin yfir Steinavötn skemmdist haustið 2017 þegar grófst undan einum stöpli brúarinnar í vatnavöxtum. Brúin var komin til ára sinna, 55 ára gömul og 102 metra löng.

Þurfti að hafa hraðar hendur og byggja bráðabirgðabrú, en það var gert á innan við viku.
Smíði nýrrar brúar yfir Steinavötn var fyrst boðin út í vor en þá bárust engin tilboð.

Útboð fór fram að nýju í haust og bárust þá níu tilboð. Það lægsta frá ÍSTAKI hf.
Verkið snýst um smíði nýrra brúa yfir Steinavötn og Fellsá ásamt uppbyggingu á Hringvegi í Suðursveit á tveimur köflum beggja megin brúa.

Veita skal ám undir nýjar brýr og eftir að vegtenging er komin á þær skal fjarlægja bráðabirgðabrýr og –vegi og gera leiðigarða við enda brúar yfir Steinavötn.

Verkinu á að vera lokið 1. apríl 2021.

Karl Andreassen framkvæmdastjóri ÍSTAK og Óskar Örn Jónsson forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar skrifuðu undir samninginn í húsnæði Vegagerðarinnar í dag, 9. desember 2019

Heimild: Vegagerðin.is