Home Fréttir Í fréttum Ísafjörður: Framkvæmt fyrir 1 milljarð króna

Ísafjörður: Framkvæmt fyrir 1 milljarð króna

228
0

Á næsta ári verður framkvæmt fyrir nærri einn milljarð króna í Ísafjarðarbæ samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun fyrir 2020.

<>

Áætlunin var samþykkt með 5 atkvæðum meirihlutaflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks en 4 fulltrúar Í listans sátu hjá.

Sveitarfélagið mun greiða 600 milljónir króna af framkvæmdakostnaði en 196 milljónir króna fást með sölu íbúða og 197 milljónir króna koma frá ríkinu sem mótframlag þess í ýmsum framkvæmdum.

Stærsta framkvæmdin á næsta ári verður boltahúsið á Torfnesi. Til þess verður varið 280 milljónum króna.

Til framkvæmda við Sundabakka verður varið 100 milljónum króna. Viðbygging leikskólans á Eyrarskjóli kostar 95 milljónir króna á næsta ári, til leiguíbúða við Sindragötu 4a er varið 80 milljónum króna.

Til kaupa á 2 slökkvibílum er ráðstafað 70 milljónum króna.

Til framkvæmda í Tungötu á Suðureyri fara 65 milljónir króna, svo og skipulag tjarnar og aðkomu í bæinn.

Heimild: BB.is