Home Fréttir Í fréttum Hvassahraun sagt betra vegna plássleysis á Keflavíkurflugvelli

Hvassahraun sagt betra vegna plássleysis á Keflavíkurflugvelli

247
0

Takmarkaðir stækkunarmöguleikar á Keflavíkurflugvelli, sé horft til lengri framtíðar, og flugstöð sem hentar illa tengiflugi, eru meðal ástæðna þess að erlendir ráðgjafar Icelandair telja að nýr millilandaflugvöllur í Hvassahrauni styðji betur við rekstur íslenskra flugfélaga heldur en Keflavíkurflugvöllur.

<>

Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2.

Stærsti kosturinn við nýjan alþjóðavöll í Hvassahrauni er að þar mætti sameina innanlands- og millilandaflug á einum stað nálægt höfuðborginni, að mati forstjóra Icelandair.

Svona gæti innanlands- og millilandaflugvöllur litið út í Hvassahrauni. Fjær má sjá álverið í Straumsvík og byggðina í Hafnarfirði. Lega flugbrauta er sýnd miðað við niðurstöður sem þegar liggja fyrir úr veðurfarsrannsóknum.
Mynd/Goldberg Partners International.

Félagið hefur lagt í talsverða vinnu á undanförnum árum með erlendum ráðgjöfum í að kanna fýsileika Hvassahrauns og hvernig best væri að koma þar fyrir flugstöð og flugbrautum og hafa ýmsar útfærslur verið skoðaðar.

Í skýrslu stýrihóps samgönguráðuneytis, og fylgiskjali um greiningu erlendu ráðgjafanna, má jafnframt sjá fleiri ástæður fyrir því að Hvassahraun er talin betri framtíðarlausn fyrir Icelandair heldur en Keflavíkurflugvöllur.

Áætlanir um framtíðaruppbyggingu á Keflavíkurflugvelli miða við að þar verði hægt að koma fyrir allt að þrjátíu landgönguhliðum, mun færri en á flugvelli í Hvassahrauni. Lega flugbrauta og staðsetning bygginga, eins og flugskýla, eru sagðar takmarka frekari stækkun.
Mynd/ISAVIA.

Þannig sýni framtíðaráætlanir ISAVIA um Keflavíkurflugvöll, svokallað masterplan, takmarkaða stækkunarmöguleika. Þar verði hægt að koma fyrir 30 landgönguhliðum.

Til að fjölga hliðum frekar þurfi að rífa nýlegar byggingar, eins og flugskýli. Á Hvassahraunsflugvelli sé á móti gert ráð fyrir 42 landgönguhliðum, sem fjölga megi upp í 56 hlið.

Notkun fjarstæða, sem áfram er gert ráð fyrir á Keflavíkurflugvelli, þar sem farþegum er ekið í rútum að flugvélum, lengi tengitíma flugfélaga, auki flækjustig og skaði upplifun farþega, ekki síst yfir vetrartímann.

Þá sé hætta á að langvarandi vaxtarverkir á flugvellinum komi óorði á Ísland sem tengimiðju.

Niðurstaða ráðgjafanna Landrums & Brown, síðar Goldberg Partners, er að nýr millilandaflugvöllur í Hvassahrauni sé betur til þess fallinn að styðja við viðskiptalíkan íslenskra flugfélaga en Keflavíkurflugvöllur.

Meðan framtíðarhönnun Keflavíkurflugvallar væru settar ákveðnar skorður yrði flugvöllur í Hvassahrauni hannaður frá grunni með flugstöð sem henti betur tengiflugvelli.

Þá bendi gróft kostnaðarmat ráðgjafanna til að nýr flugvöllur í Hvassahrauni yrði ekki mikið dýrari en uppbygging Keflavíkurflugvallar þegar tekið væri tillit til þess að nýta mætti virði þess lands í Vatnsmýrinni sem losnaði við lokun Reykjavíkurflugvallar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2

Heimild: Visir.is