Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, skrifuðu undir samkomulag til tveggja ára á blaðamannafundi í dag um að standa straum af rannsóknum fyrir byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni með það fyrir augum að fullkanna kosti á því að reisa þar og reka flugvöll sem myndi gegna hlutverki innanlandsflugvallar, varaflugvallar og flugvallar fyrir æfinga-, kennslu-, og einkaflug.
Skýrsla um flugvallakosti á suðvesturhorni landsins var kynnt á blaðamannafundi á fimmta tímanum.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður stýrihóps sem skipaður var í fyrra um verkefnið, kynnti inntak skýrslunnar og afhenti hana Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra.
Að loknum veðurmælingum og flugprófunum, sem áætlað er að taki tvö ár, verður tekin ákvörðun um það hvort ráðast eigi í uppbyggingu flugvallar í Hvassahauni. Þetta er á meðal tillagna vinnuhópsins um flugvallakosti á suðvesturhorninu.
Starfshópurinn mælist til þess að samgönguyfirvöld hefji viðræður við Reykjavík, sveitarfélögin á Suðurnesjum og aðra hlutaðeigandi aðila um flugvöll í Hvassahrauni.
Ákvörðun um nýjan millilandaflugvöll þarf að taka með að lágmarki þrettán til sautján ára fyrirvara og nýjan innanlands- og varaflugvöll með allt að fimmtán ára fyrirvara.
Samstarfsverkefnið felur í sér veðurrannsóknir, flugprófanir og vatnsverndarrannsóknir svo fátt eitt sé nefnt.
Aðilar leggja hvor um sig hundrað milljónir króna til fjármögnunar rannsóknanna. Fullyrt er í samkomulaginu að samstarfsaðilarnir séu sammála um að stefnt skuli að því að flytja núverandi flugstarfsemi út Vatnsmýrinni yfir á nýjan flugvöll í Hvassahrauni, reynist það vænlegur kostur að loknum rannsóknum.
Dagur var ánægður að sjá á fundinum. „Frá mínum bæjardyrum séð er þetta mikill áfangi, mjög stórt skref. Stór mál verða auðvitað aldrei tekin nema í skrefum og þetta er mjög stórt skref.
Þessi gullna setning; ef þetta reynist vænlegur kostur þá er stefnt að því að varaflugvöllurinn, innanlandsflugvöllur, æfingarkennslan og einkaflugið fari í Hvassahraun. Í mínum huga er þetta mjög ánægjuleg tímamót.
Takk fyrir samstarfið,“ sagði borgarstjóri og beindi orðum sínum til vinnuhópsins og samstarfsaðila.
Hér er hægt að lesa skýrsluna í heild sinni og umrætt samkomulag.
Heimild: Visir.is