Vestmannaeyjahöfn óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Skipalyftukants.
Helstu magntölur eru:
-
- Brjóta 111 m af kantbita
- Taka upp 15 stálþilsplötur
- Reka niður 69 stálþilsplötur
- Setja upp 111 m af stálþilsfestingum
- Fylla um 2.800 m3
- Steypa 111 m af kantbita
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 25. nóvember.
Óska skal eftir útboðsgögnum á netfangið sagverk@outlook.com.
Skila skal tilboðum til Ólafs Þórs Snorrasonar á netfangið olisnorra@vestmannaeyjar.is eigi síðar en fimmtudaginn 12. desember 2019, kl. 14:00.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2020.