Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Skrifað undir samning vegna 2. og 3. áfanga Helgafellsskóla

Skrifað undir samning vegna 2. og 3. áfanga Helgafellsskóla

427
0
Mynd: Mosfellsbær

Mosfellsbær vinnur að byggingu leik- og grunnskólans Helgafellsskóla og hefur það verið gert í nokkrum áföngum. Byggingu 1. áfanga skólans er lokið, búið er að innrétta leikskóla sem telst til 4. áfanga og unnið er að hluta lóðar og á þeirri vinnu að ljúka á næstu mánuðum.

<>

Mosfellsbær bauð út vinnu við 2. og 3. áfanga nýbyggingar Helgafellsskóla í mars 2019.

Föstudaginn 13. nóvember skrifaði Haraldur Sverrisson bæjarstjóri fyrir hönd bæjarins undir samning við lægstbjóðanda í verkið sem voru Flotgólf ehf og Eignarhaldsfélagið ÁD og voru það Ásgeir J. Guðmundsson og Oddur Th. Guðnason sem skrifuðu undir fyrir þeirra hönd.

Í verkinu felst uppbygging 2. og 3. áfanga Helgafellsskóla og verður þeim hluta skilað fullfrágengnum og sá hluti skólans tengdur við fyrri áfanga.

Einnig er um að ræða lóðarfrágang á hluta vestur lóðar.

Helstu verkþættir í verki, sem þetta útboð nær til eru eftirfarandi:

  • Jarðvinna.
  • Uppsteypa, forsteyptar einingar, holplötur og þakeiningar.
  • Útigluggar og -hurðir, einangrun og klæðningar.
  • Þakfrágangur, niðurföll og grunnlagnir.
  • Innanhússfrágangur ásamt tæknikerfum.
  • Lóð.

Heimild: Mosfellsbær.is