Home Fréttir Í fréttum Vígsla viðbyggingar við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Vígsla viðbyggingar við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

111
0
Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra. Mynd: Huni.is

Viðbyggingin við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga var vígð á þriðjudaginn. Með tilkomu hennar er aðstaða í Íþróttamiðstöðinni orðin hin besta og þjónusta við íbúana eykst verulega.

<>

Anddyrið var stækkað og móttaka og aðkoma gesta orðin góð. Við vígsluathöfnina fór Þorleifur Karl Eggertsson oddviti Húnaþings vestra yfir sögu byggingarinnar sem var að mestu unnin af heimamönnum.

Ráðbarður sf. sá um hönnun hússins sem hófst árið 2016. Fyrsta skóflustungan var tekinn um mitt ár 2017 og var uppsteypu lokið vorið 2018 og húsinu lokað þá um sumarið.

Tók þá við frágangur innanhúss og utan sem lauk nú í haust. Stærð viðbyggingarinnar er 300 fermetrar.
Aðstaða til íþróttaiðkunar hefur batnað verulega með góðum þrektækjasal með einstöku útsýni yfir fjörðinn og nýjum tækjum og búnaði.

Einnig minni sal sem gefur möguleika á að vera með hóptíma og fjölbreyttar æfingar. Markmiðið er að koma til móts við fjölbreyttan notendahóp á öllum aldri.

Aðstaða starfsfólks og kennara hefur batnað sömuleiðis Góð áhaldageymsla er í húsinu auk þess sem geymslupláss hefur aukist. Aðgengi fyrir fatlaða hefur verið bætt með tilkomu lyftu og nýrrar snyrtinga fyrir fatlaða, einnig er nýtt dómaraherbergi með sturtuaðstöðu.

Auk þess var eldri búningsaðstaða tekin upp að hluta, loftræsting og myndavélakerfi endurnýjað.

Heimild: Huni.is