Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdum við undirgöng miðar vel

Framkvæmdum við undirgöng miðar vel

175
0
Mynd: Sudurnes.net

Framkvæmdir við göng undir Víkurbraut til móts við Suðurhóp í Grindavík ganga vel. Unnið að því að steypa upp göngin.

<>

Taka þurfti Víkurbraut í sundur við framkvæmdina og þurfa því vegfarendur að fara hjáleið um Hópsbraut, Vesturhóp og Suðurhóp.

Áætluð verklok eru í október og þarf því að fara hjáleið áfram. Í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og aka varlega um svæðið.

Verktakafyrirtækið Ellert Skúlason hf. vinnur verkið, en einungis eitt tilboð barst sem var um 18 milljónum króna hærra en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á.

Heimild: Sudurnes.net