Home Fréttir Í fréttum 1,4 milljarða króna viðbótarkostnaður hjá Sorpu

1,4 milljarða króna viðbótarkostnaður hjá Sorpu

201
0
Gas- og jarðgerðarstöðin Sorpu í Álfsnesi. Mynd: Sorpa

Breytingar á fjárfestingaáætlun Sorpu til næstu fjögurra ára voru samþykktar á stjórnarfundi félagsins í dag. Viðbótarkostnaðurinn nemur í heildina um 1,4 milljörðum króna.

<>

Snýr hann annars vegar að auknum kostnaði við gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi og hins vegar að kaupum á tækjabúnaði í stækkaða móttökustöð Sorpu í Gufunesi.

Ákvörðunin fer nú til borgar- og bæjarstjórna á höfuðborgarsvæðinu í kynningar- og samþykktarferli. Sorpa er í eigu Reykjavíkurborgar og bæja á höfuðborgarsvæðinu.

„Annars vegar er um að ræða 17,7% viðbótarkostnað við gas- og jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi sem ráðgert er að taka í notkun á næsta ári.

Ný áætlun gerir ráð fyrir að kostnaður við stöðina aukist um 637 m.kr. frá þvi sem áætlað var í fjárfestingaáætlun 2019-2023, eða úr 3.610 m.kr. í 4.247 m.kr.

Stærstur hluti viðbótarkostnaðar við gas- og jarðgerðarstöðina er vegna aukinnar jarðvinnu og meira magns byggingarefna en ráð var fyrir gert, sem meðal annars má rekja til þess að færa þurfti stöðina til á lóðinni í Álfsnesi og skipta út ófullnægjandi byggingarefni undir botnplötu.

Þá eru verðbætur upp á 186 m.kr. hluti af þessum viðbótarkostnaði sem ekki var gert ráð fyrir í fyrri áætlun,“ segir í tilkynningu.

„Hins vegar er 719 m.kr. kostnaður vegna tækjabúnaðar í stækkaða móttökustöð SORPU í Gufunesi. Gert var ráð fyrir þessum kostnaði í áætlun SORPU fyrir árið 2018 en láðist að færa hann inn í fjárfestingaáætlun ársins 2019.

Á móti kemur að byggingakostnaður vegna stækkunar stöðvarinnar, sem gert var ráð fyrir að yrði 605 milljónir króna, verður lægri eða á bilinu 361 til 418 milljónir króna.“

Samtals nemur viðbótarkostnaður frá samþykktri fjárfestingaáætlun vegna gas- og jarðgerðarstöðvar og vegna kostnaðar við tækjabúnað í móttökustöð tæplega 1,4 milljörðum króna.

„Sem fyrr segir var gert ráð fyrir stærstum hluta þessarar upphæðar í fjárfestingaáætlun 2018 en það var ekki fært til bókar í fjárfestingaáætlun 2019-2023.“

Málið hefur að því er fram kemur í tilkynningunni verið til umræðu á eigenda- og stjórnarfundum SORPU bs. í júlí og ágúst.

„Þar hefur framkvæmdastjóri SORPU bs. kynnt tillögur um aðgerðir til að mæta þessari breyttu stöðu.

Tillögur hans gera ráð fyrir að semja við lánastofnanir um skuldbreytingu og lengingu lána og að tekin verði ný lán upp á 990 milljónir króna til 15 ára.

Einnig að frestað verði kaupum á hluta tækjabúnaðar í móttökustöðina í Gufunesi og að nokkrum öðrum óskyldum fjárfestingum verði frestað.

Á stjórnarfundi SORPU í morgun var bókað að fara þurfi yfir verkferla félagsins og var formanni og varaformanni stjórnar falið að fá óháðan aðila til að framkvæma úttekt á starfsemi félagsins og leggja tillögur þar að lútandi fyrir næsta fund stjórnar.“

Heimild: Visir.is