F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Ártúnsskóli. Endurnýjun á þaki, útboð nr. 14634.
Verkið felst í endurnýjun á 735m2 þaki Ártúnsskóla. Verkið nær til suðvesturþekju aðalbyggingar ásamt aðliggjandi lóðréttum hliðarveggjum þess þakflatar.
Um er að ræða rif og förgun eldri þakflata og endurnýjun á lektuðu þakjárni, pappa og borðaklæðningu ásamt frágangi.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 3. september 2019 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, þann 16. september 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is