Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið: Endurbætur innanhús Búðareyri 11-13 Reyðarfirði.
Um er að ræða endurbætur innanhúss á skrifstofum, verkstæði- og geymslurými Vegagerðarinnar að Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði. Verkefnið felst í því að endurnýja lagnir, setja upp loftræstikerfi og innrétta húsnæðið uppá nýtt á um 430 m2 svæði, auk verkstæðis- og geymslurýmis, um 165 m2.
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði frá og með þriðjudeginum 27. ágúst 2019.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. september 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.