Vegagerðin býður hér með út uppsetningu nýrrar girðingar við Dettifossveg (862) í Norður Þingeyjarsýslu, frá Ásheiði að Tóvegg. Heildarlengd girðingar er 12,3 km.
Helstu magntölur eru:
– Netgirðingar 1.600 m
– Rafmagnsgirðingar 10.700 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. nóvember 2019, að undanskildum 2 km löngum kafla sem skal lokið fyrir 15. júní 2020.
Útboðsgögnin eru afhent hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með mánudeginum 15. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. júlí 2019 og og verða þau oðnuð þar kl. 14:15 sama dag.