Vegagerðin óskar eftir tilboðum í lengingu á frárein og breikkun rampa við Bústaðaveg ásamt tilheyrandi jarðvinnu, gerð hljóðmanar og breytingu á umferðarljósum
Helstu magntölur eru:
Skeringar 2.250 m³
Styrktar- og burðarlagsefni úr námum 770 m³
Stungumalbik 1.850 m²
Kantsteinar 540 m²
Yfirborðsfrágangur manar og hliðarsvæða 2.400 m²
Breytingum í vegamótum skal vera lokið 1. október 2019. Frágangi utan vega skal vera lokið 15. nóvember 2019.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 16. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. júlí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.