Home Fréttir Í fréttum Danskur verktaki fær flugvelli á Grænlandi

Danskur verktaki fær flugvelli á Grænlandi

481
0
Flugbrautin í Nuuk fer úr 950 metrum upp í 2.200 metra. Grafík/Kalaalit Airports

Danska verktakafyrirtækið Munck Gruppen varð hlutskarpast í útboði um gerð nýrra flugvalla í Nuuk og Ilulissat á Grænlandi. Tilboðsfjárhæð hefur ekki verið gefin upp en í frétt grænlenska fréttamiðilsins Sermitsiaq kemur fram að júlímánuður verði nýttur til að ganga frá efnisatriðum samninga og stefnt sé að undirritun í ágústmánuði.

<>

Þrjú tilboð bárust. Hin tvö voru frá kanadíska félaginu Pennecon Dextor og hollenska félaginu BAM.

Alls var sex verktakasamsteypum boðið að taka þátt í forvali en þrjár þeirra skiluðu ekki inn tilboði, þeirra á meðal kínverskur verktaki, en aðkoma hans olli pólitískum titringi meðal NATO-þjóða.

Þá hafði dansk íslenska samsteypan Aarsleff/Ístak áður tilkynnt að hún hefði fallið frá þátttöku í forvalinu.

Framkvæmdir eiga að hefjast strax í haust við báða flugvelli. Umsvifin verða fyrst mest í Nuuk en stefnt að því að næsta vor verði framkvæmdir einnig komnar á fullt í Ilulissat.

Grafísk mynd af flugvellinum í Ilulissat eftir stækkun. Ef grannt er skoðað sést að Grænlendingar gera ráð fyrir flugvélum frá Icelandair og Air Iceland Connect.
Grafík/Kalallit Airports.

Báðir flugvellir eiga að vera tilbúnir fyrir árslok 2023, er haft eftir Peter Wistoft, framkvæmdastjóra Kalaallit Airports, flugvallafélags Grænlands, í fréttatilkynningu.

Hann upplýsir ennfremur að félagið hafi nú samið um lántöku vegna framkvæmdanna, sem nemur 8,5 milljörðum íslenskra króna, frá danska ríkinu og Norræna fjárfestingabankanum.

Flugvallagerðin verður stærsta innviðauppbygging í sögu Grænlands og var áætlað í fyrra að hún myndi kosta um 70 milljarða íslenskra króna.

Vellirnir í Nuuk og Ilulissat fá nýja flugstöð og 2.200 metra flugbraut, til að geta tekið við þotuumferð, en núverandi brautir eru aðeins 900-1.000 metra langar.

Jafnframt verður nýr flugvöllur með 1.500 metra langri braut lagður við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands.

Samningur sem Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, gerði síðastliðið haust við Lars Løkke Rasmussen, þáverandi forsætisráðherra Danmerkur, um milljarða fjárstuðning Dana við flugvallgerðina, leiddi til þess að grænlenska ríkisstjórnin sprakk.

Kim Kielsen tókst engu að síður að tryggja sér meirihlutastuðning fyrir málinu og mynda nýja ríkisstjórn.

Í dönskum fjölmiðlum var haft eftir sérfræðingum um varnarmál að gjafmildi Dana snerist í raun um að halda Kínverjum frá Grænlandi.

Um sama leyti lýsti bandaríska varnarmálaráðuneytið yfir vilja til að taka þátt í flugvallagerðinni en ekki hefur komið fram með hvaða hætti það verður gert.

Danski verktakinn Munck Gruppen, sem nú fær flugvallagerðina, vann stórt verkefni fyrir bandaríska herinn við Thule-herstöðina á Norður-Grænlandi á árunum 2014 til 2017.

Árið 2016 keypti Munck íslenska verktakafyrirtækið LNS Saga af norska félaginu LNS og breytti nafni þess í Munck Íslandi ehf.

Þessu íslenska dótturfélagi var í dönskum fjölmiðlum fyrr á árinu lýst sem vandræðabarni Munck eftir stórfelldan taprekstur á árunum 2017 til 2018.

Munck höfðaði síðan mál gegn LNS fyrir að hafa gefið ófullnægjandi og villandi upplýsingar um stöðu félagsins í söluferlinu.

Heimild: Visir.is