Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samningur um byggingu leikskóla á Kleppjárnsreykjum

Samningur um byggingu leikskóla á Kleppjárnsreykjum

262
0
Mynd: Borgarbyggð

Í dag, 18. júní, var undirritaður samningur Borgarbyggðar við Eirík Jón Ingólfsson byggingarverktaka um byggingu leikskóla við Kleppjárnsreykjaskóla.

<>

Útboð vegna framkvæmdanna fór fram í apríl á þessu ári.

Um er að ræða viðbyggingu á einni hæð við Grunnskólann á Kleppjárnsreykjum, um 540 m² að stærð, þar sem leikskólinn Hnoðraból verður staðsettur ásamt skrifstofum fyrir starfsfólks leikskólans og grunnskólans.

Framkvæmdir munu hefjast næstkomandi mánudag, 25. júní. Byggingareftirlitsmaður sveitarfélagsins er Benedikt Magnússon hjá verkfræðistofunni Víðsjá.

Heimild: Borgarbyggð