Veitur ohf. óska eftir tilboðum í verkið
„VEV-2019-09 – Árbæjaræð – Stofnæð hitaveitu“.
Verkið er í aðalatriðum fólgið í lagningu nýrrar 700mm (DN700) stofnæðar hitaveitu, einangruð stálpípa, sem flytja á virkjanavatn frá Suðuræð við Rauðavatn að dreifikerfum Árbæjar og Ártúnshöfða ásamt stýristrengjum, tengibrunnum og jarðvír.