Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Kalmanstorg og Esjubraut á Akranesi hafnar

Framkvæmdir við Kalmanstorg og Esjubraut á Akranesi hafnar

180
0

Einnig verður nýr göngu- og hjólastígur gerður norðan við Esjubraut. Veitur munu endurnýja allar lagnir samhliða þessum framkvæmdum.

<>

Áætlaður framkvæmdatími er til septemberloka 2019 í fyrri hlut verkefnisins.

Seinni hlutinn, frá gatnamótum við Smiðjuvelli / Dalbraut að Esjutorgi, verður svo unninn í framhaldinu og eru áætluð verklok við þann hluta í nóvember 2019.

Gatnamót við Smiðjuvelli / Dalbraut verða lokuð á meðan framkvæmdir við seinni hluta standa yfir.

Ljóst er að þessar framkvæmdir valda töluverðu raski fyrir íbúa og vegfarendur á þessu svæði. Mikilvægt er að sýna þessu aðstæðum skilning og að fara með gát um svæðið.

Tímabundin óþægindi munu skila betra og öruggari umhverfi fyrir alla vegfarendur að loknum framkvæmdum.

Heimild: Skagafrettir.is