F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Endurnýjun gönguleiða 2019 – Útboð I., útboð nr. 14482
Helstu magntölur:
Steyptar stéttar 1.350 m2
Hellulagðar stéttar 540 m2
Steyptur kantsteinn 270 m
Grásteinskantur 170 m
Lagning strengja 1.000 m
Hitaveitulagnir 140 m
Lokaskiladagur verksins er 30. sept. 2019
Útboðsgögn eru eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is., frá kl. 12:00, mánudaginn 20. maí 2019. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir vegna útboðsins í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. júní 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is