Home Fréttir Í fréttum Fyrstu lóðunum úthlutað í 3. áfanga Skarðshlíðarhverfis

Fyrstu lóðunum úthlutað í 3. áfanga Skarðshlíðarhverfis

343
0
Ljósmynd: ONNO ehf

Opnað var fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun íbúðahúsalóða í 3. áfanga Skarðshlíðarhverfis um miðjan mars síðastliðinn.

<>

Umsóknarfrestur var til 22. apríl 2019 og var fyrstu lóðunum úthlutað á fundi bæjarstjórnar í gær. Uppbygging í hverfi er þegar farin af stað.

Öllum lóðum í 1. áfanga hefur verið úthlutað, nokkrum fjölda í 2. áfanga og mikill áhugi fyrir lóðum í þriðja og síðasta áfanganum.

Allar upplýsingar um lausar lausir í Skarðshlíð, stærð, útlit og verð er að finna á upplýsingasíðu um Skarðshlíðarhverfi: www.skardshlidin.is

Sannkölluð náttúruperla á frábærum stað
Skarðshlíðin er nýtt og fjölskylduvænt íbúðahverfi í Hafnarfirði sem stendur á flata og í brekku sunnan og vestan í Ásfjalli.

Við hönnun og skipulag hverfisins hefur áhersla verið lögð á heildræna sýn, heildrænar götumyndir, vistvænt skipulag, sjálfbærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði.

Stutt er í alla þjónustu, möguleikar á að starfa í heimabyggð miklir og mikil nálægð við uppland Hafnarfjarðar og fallegar náttúruperlur.

Blönduð byggð íbúðahúsa
Í Skarðshlíðarhverfi rís blönduð byggð einbýlishúsa, parhúsa, raðhúsa og lágreistra fjölbýlishúsa.

Lóðir fyrir fjöleignarhús standa á flata nálægt skólanum en byggðin greinist svo upp Skarðshlíðarbrekkuna með raðhúsum og parhúsum neðst og einbýlishúsum ofar þar sem landhalli er meiri.

Hverfið er til þess fallið að taka á móti öllum, hvort sem um er að ræða pör, litlar eða stórar fjölskyldur eða eldri einstaklinga sem vilja minnka við sig en samt komast í nýtt húsnæði.

Hverfisskólinn, Skarðshlíðarskóli , hefur þegar tekið til starfa og mun leikskóli taka til starfa haustið 2019. Uppbygging hverfis skiptist í þrjá áfanga:

Áfangi 1: Lóðir fyrir 26 fjöleignarhús með 231 íbúðum sem standa á flata. Allar lóðir seldar

Áfangi 2: Lóðir fyrir einbýlishús, tvíbýlishús, parhús og raðhús sem telja 165 íbúðir í heild.

Áfangi 3: Lóðir fyrir einbýlishús, tvíbýlishús, parhús og raðhús sem telja 120 íbúðir í heild.

Góðar samgöngur og framkvæmdir við flutning Hamraneslínu að hefjast
Samgöngur milli hverfa eru nokkuð greiðar og sífellt að verða greiðari.

Ný mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg eru komin í notkun og tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar í sjónmáli. Ásvallabraut mun svo greiða enn frekar fyrir umferð til og frá hverfinu eins og sjá má á mynd.

Við hönnun og skipulag hverfisins er áhersla lögð á heildrænar götumyndir og vistvænt skipulag og eru gönguleiðir í skóla og íþróttaaðstöðu öruggar og góðar.

Lega Hamraneslínu í gegnum hverfið hefur staðið uppbyggingu fyrir þrifum.

Nú er færsla línunnar í sjónmáli og er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði að fullu lokið fyrir lok sumars 2019.
Ítarlegar upplýsingar s.s. deiliskipulagsuppdrátt, greinargerð og skipulagsskilmála, almenna úthlutunarskilmála, hæða- og mæliblöð er að finna HÉR

Heimild: Hafnarfjörður.is