Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Dýrafjarðargöng (60): Stjórnkerfi

Opnun útboðs: Dýrafjarðargöng (60): Stjórnkerfi

253
0

Tilboð opnuð 7. maí 2019. Gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng. Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng en þau eru um 5,6 km löng, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.

<>

Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum ef hættusástand skapast. Innifalið í verkinu er hönnun/smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.

Helstu magntölur verksins eru:
· Stjórnskápar 11 stk.
· Neyðarsímaskápar 17 stk.
· Neyðarsímaklefar 4 við tæknirými
· Iðntölvubúnaður 28 stýrivélar og fjar I/O
· Netbúnaður 29 stk.
· IP neyðarsímar 28 stk.
· PC tölvubúnaður 2 stk.
· Forritun stjórnkerfis samkvæmt kröfum
· Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
· Gerð handbóka um kerfið
Verki skal lokið að fullu 31. ágúst 2020