Home Fréttir Í fréttum 21.05.2019 Fjarðabyggð – Norðfjörður, endurbygging Togarabryggju 2019

21.05.2019 Fjarðabyggð – Norðfjörður, endurbygging Togarabryggju 2019

234
0
Neskaupstaður. Mynd: Austurfrétt.is

Hafnarstjórn Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:

<>

· Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.
· Leggja vatns- og fráveitulögn.
· Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju og malbik.
· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.500 m².

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2019.

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og Hafnarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, frá og með þriðjudeginum 7. maí 2019.

Skila skal tilboðum á Hafnarskrifstofu Fjarðabyggðar fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. maí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.