Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir á Vestursvæði og Norðursvæði 2019.
Helstu magntölur eru:
Hjólfarafylling með flotbiki 111.960 m2
Framleiðsla á kaldbiki 2.000 tonn
Útboðsgögnin eru afhent hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 30. apríl 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. maí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.