Home Fréttir Í fréttum 07.05.2019 Dýrafjarðargöng (60): Stjórnkerfi

07.05.2019 Dýrafjarðargöng (60): Stjórnkerfi

116
0
Gangamunninn Arnarfjarðarmegin verður skammt frá Mjólkárvirkjun. Mynd: GRAFÍK/VEGAGERÐIN.

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng.
Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng en þau eru um 5,6 km löng, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.

<>

Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum ef hættusástand skapast. Innifalið í verkinu er hönnun/smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.

Helstu magntölur verksins eru:

· Stjórnskápar 11 stk.
· Neyðarsímaskápar 17 stk.
· Neyðarsímaklefar 4 við tæknirými
· Iðntölvubúnaður 28 stýrivélar og fjar I/O
· Netbúnaður 29 stk.
· IP neyðarsímar 28 stk.
· PC tölvubúnaður 2 stk.
· Forritun stjórnkerfis samkvæmt kröfum
· Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
· Gerð handbóka um kerfið

Verki skal lokið að fullu 31. ágúst 2020

Útboðsgögn (á tölvulykli) verða afhent hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá mánudeginum 8. apríl 2019.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. maí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.