Home Fréttir Í fréttum 10.05.2019 Sveitafélagið Árborg, hönnun á leik- og grunnskóla ásamt tónlistarskóla

10.05.2019 Sveitafélagið Árborg, hönnun á leik- og grunnskóla ásamt tónlistarskóla

361
0
Selfoss. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

SVEITARFÉLAGIÐ ÁRBORG – LEIK-, GRUNNSKÓLI OG TÓNLISTARSKÓLI- HÖNNUNARÚTBOÐ

<>

Fasteignafélag Árborgar óskar eftir tilboðum frá áhugasömum og hæfum ráðgjöfum í hönnun nýbyggingar fyrir leik- og grunnskóla ásamt tónlistarskóla í Björkurstykki á Selfossi.

Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi um 28.690 m² grunn- og leikskólalóð. Gert er ráð fyrir að byggður verði skóli fyrir um 700 börn á aldrinum 1 – 15 ára og um 100 starfsmenn.

Áætluð endanleg stærð byggingarinnar er um 10.660 m² brúttó á tveimur hæðum. Gert er ráð fyrir að skólinn verði byggður í nokkrum áföngum á nokkurra ára tímabili. Áætluð stærð 1. áfanga byggingarinnar er um 3.900 m².

Markmiðið er að byggja hagkvæman og vel útfærðan skóla sem mætir þörfum metnaðarfulls skólastarfs.

Fasteignafélag Árborgar óskar eftir tilboðum frá hönnunarhópum sem samanstanda af eftirfarandi faghönnuðum:

Arkitektum,
Verkfræðihönnuðum,
Burðarvirki, lagnir, loftræsing, rafkerfi, lýsingarhönnun
Landslagsarkitektum,
Ráðgjöfum í brunahönnun,
Ráðgjöfum í hljóðvist.

Samkvæmt áætlun skal fullnaðarhönnun 1. áfanga lokið í júní 2020 en útboð jarðvinnu skal fara fram í maí 2020.

Útboðsgögn á USB lykli verða afhent hjá Verkís, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík frá og með föstudeginum 5. apríl 2019.

Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en föstudaginn 10. maí kl. 11:00 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.