Home Fréttir Í fréttum 09.05.2019 Reykjavíkurborg Smáhýsi fyrir Velferðasvið EES

09.05.2019 Reykjavíkurborg Smáhýsi fyrir Velferðasvið EES

296
0
Mynd: Vísir.is/Facebooksíða Heiðu Bjargar

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Smáhýsi fyrir Velferðasvið – EES útboð nr. 14501

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í smíði og flutningi á verkstað á 20 smáhýsum í Reykjavík.

Stærð hvert húss er um 30 m2 og gert er ráð fyrir að húsin verði byggð á umráðasvæði á vegum verktaka og flutt í heilu lagi á þær lóðir sem þeim er ætla að standa á.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00, þriðjudaginn 9. apríl 2019.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 9. maí 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is